Nú er kominn júlí - allar hryssur kastaðar, nema Gára en hún er mjög seint. Fylið hennar er undan Huginn frá Haga.
1. Blástjarna er með brúna hryssu undan Sveini-Hervari frá Þúfu.
2. Spöng með gráa hryssu undan Huginn frá Haga.
3. Lind med rauðblesóttan hest undan Hágangi frá Narfastöðum.
4. Sýla með móvindóttan hest undan Bláskegg frá Hrafnkelsstöðum 1. Sá litli (Blástakkur) er nú þegar seldur til Þýskalands.
5. Björk með rauðstjörnótta hryssu sömuleiðis undan Bláskegg.
6. Skyggna með grástjörnótta hryssu undan Kjarna frá Þjóðolfshaga.
7. Erta með rauðstjörnótta hryssu undan Eldjárni frá Tjaldhólum.
8. Gola frá Grafarbakka, sem er hér fengin að láni, er með gráan hest undan Sandi frá Varmadal.
Rangá er orðin 25 vetra og hefur ekki haldið í tvö ár.
Það er alltaf spennandi að fylgjast með folöldunum fyrstu vikurnar - spá og spekúlera í útliti og hegðun þeirra. Vonin í fallegu folaldi er alltaf sterk - þótt stundum bregði til beggja átta með framhaldið.