Þá er kynbótasýningum lokið þetta árið. Hryssurnar sem minnst var á í síðustu frétt hækkuðu báðar - mismikið þó.
Hnyðja hækkaði fyrir hægt stökk í 8, sem hækkar ekki aðaleinkunn, en hún er núna með 8 fyrir alla hæfileikaþætti fyrir utan 7,5 fet og 5,0 skeið. Það gerir 7,64 út.
Hanna þeirra Helga og Gunnhildar stal senunni í 4ra vetra flokknum! Hún fór í 8,13 í aðaleinkunn - snilldarlega sýnd af Janusi. Til hamingju öll! :-)
Svo var ein hryssa í viðbót frá bænum sýnd í kynbótadómi, en það var hún Rein frá Hrafnkelsstöðum 1 undan Björk og Fáki frá Auðsholtshjáleigu. Við seldum hana til Svíþjóðar í hitteðfyrra, og er gaman að sjá hvað það gengur vel með hana. Hún fór í 8,18 í aðaleinkunn. Þar með er hún í 10. sæti yfir allar hryssur 7 vetra og eldri sýndar erlendis, og er hún lang efst fyrir sköpulag.