Nú er júlímánuði að ljúka og loksins kominn þurrkur eftir miklar rigningar. Lánið lék þó við okkur hér á bæ, því að við náðum að heyja öll aðaltúnin um síðustu mánaðarmót, á þremur þurrum dögum sem þá komu.
Sauðféð fór í afrétt fyrstu vikuna í júlí, og eru túnin sem það var á óðum að ná sprettu til sláttar, og er aðeins byrjað á þeim.
Folaldshryssurnar eru að koma heim frá stóðhestum hver af annarri, ýmist fyljaðar eða að bíða sónarskoðurnar. Þeir hestar sem notaðir verða í ár eru: Huginn, Hágangur, Aðall, Fróði, Jarl, Vesturfari, Lukku-Láki, Andri, Loki, Stáli og Spuni.
:-)
Eins og undanfarin sumur, er Maja með aðstöðu hér til tamninga, bæði fyrir okkur og aðra. Þetta gengur mjög vel, og er stefnan að enda á því að taka þriggja vetra tryppin okkar 4 í hálfsmánaðar skóla. Það tókst svo ljómandi vel í fyrra.
Miðsumarsýning kynbótahrossa fór fram á Hellu í vikunni. Stöng okkar og Hnyðja voru sýndar með miklum ágætum af Sigga í Þjóðólfshaga. Hér fyrir neðan má sjá upptökur af þeim á yfirlitssýningunni.