Haustveðrið hefur verið alveg frábært, eins og raunar allt veður sem af er árinu.
Fjallferðin gekk vel, og heimtur fjár úr afréttti góðar.
Hrunaréttir voru 10. september með öllu því sem tilheyrir, réttarfagnaði og svo framvegis.
Hér var fagnaður góður, haldinn í fjárhúsinu eins og undanfarin haust, heimsóttu okkur talsvert á annað hundrað manns og þáðu súpu o.fl.
Tvær 3ja vetra Krummadætur hafa nú verið 5 vikur í tamningu hjá Óla Andra í Austurási. Þær eru sagðar hafa skoðarnir á meðferðinni og láta hafa fyrir sér - án þess þó að vera með óþveragang.
Hnyðja Funadóttir var í tamningu hjá Maju í Reykjavík í mánuð, og var ekkert nema þægðin. Stór og flott hryssa þar á ferð.
Í dag fór síðasti fjárhópurinn í sláturhúsið. Við erum mjög ánægð með útkomuna það sem af er, og höfum við aldrei komist hærra í kjötmati. Þetta er þingeyska féð.
Bless að sinni :-)