Við hér á Hrafnkelsstöðum heilsum ykkur á nýju ári. Janúar þegar liðinn og kominn miður febrúar. Það er nú meira hvað tíminn líður. Maður hefði verið ánægður með það á unglingsárunum, þegar dagarnir ætluðu aldrei enda að taka. En svona er lífið.
Hér á bæ gengur allt sinn vanagang miðað við árstíma. Reyndar er frúin ekki búin að járna, en það horfir til betri vegar. Við njótum bara góðs af annara verkum í tamningu á tryppunum okkar.
Búið er að klippa öll fóðrafolöldin, en að venju voru það Helgi Gísla og Janus sem stóðu í ströngu við það verkefni. Kærar þakkir strákar mínir. Nú er gott að sjá línur hvers og eins.
Eigendurnir koma í heimsókn og láta sig dreyma um framtíðina. Þetta eru nokkurskonar "foreldradagar" sem gaman er að taka þátt í.
Við komumst nýlega að því að hún Gára okkar er með hæsta kynbótamatið í heiminum fyrir prúðleika. Hún trónir þar á toppnum með 128 stig. Í kynbótadómi er hún með 9,5 fyrir þennan þátt. Það er ekki amalegt að eiga heimsmeistara í einhverju! :-)
Að lokum viljum við benda á að við ætlum að uppfæra sölusíðuna okkar reglulega, en það eru alltaf einhver hross til sölu hér á bænum. Sem áður fylgir það hrossaræktinni að þurfa að selja hross.