Það eru komin enn ein mánaðarmótin og vart séð til sólar síðastliðna þrjá mánuði. Þetta er nú meira tíðarfarið, sauðfjár komst ekki í afrétt fyrr en um miðjan júlí vegna vatnavaxta í ám. Ekki hefur náðst að heyja að öllu leyti en það næst vonandi fyrir haustið. Hvernig skildi ágúst verða? Annars gekk sauðburður vel og fleiri lömb fæddust og eru til en á síðastliðnu vori.
Aftur á móti er fækkun í hrossastóðinu á bænum. Sytra skilaði ekki sem skyldi og var felld. Kliður minn þótti ekki vera fyrir hvern sem var og var því látinn hverfa. Dalvör fékk hófsperru fyrir tveimur árum sem tók sig aftur upp í vor og fór af þeim sökum. Svo fór illa fyrir Skyggnu blessaðri en hún var felld eftir að hafa ofreynst við köstun á dauðu folaldi. Þá þóttu systkinin Spes og Spölur ekki sýna það sem til þarf í dag og fóru þau sömu leið. Blákvísl var síðan seld.
Svo þegar til kom þá höfðu Lygna og Lind tapað fyljunum þannig að eitt folald fæðist lifandi í ár, grár hestur undan Spönn og Vita frá Kagaðarhóli. Spönn er nú fyljuð með Spaða frá Stuðlum. Lind og Lygna fara undir Storm frá Herriðarhóli.
Sex þriggja vetra tryppi fara í hausttamningu. Það eru þrír hestar undan Hrafnari frá Auðsholtshjáleigu, Spuna frá Vesturkoti, Kristal frá Auðsholtshjáleigu og þrjár merar undan Herkúles frá Ragnheiðarstöðum, Toppi frá Auðsholtshjáleigu og Gára frá Auðsholtshjáleigu. Við höldum okkur við tamningafólk síðustu ára og fara þau til Janusar, Bylgju og Óla Andra, og Ástu í Austurási.
Nú styttist í haustverkin, fjallferðir, fjárrag og fleira.
Biðjum að heilsa í bili.