Já sauðféð fór allt í afréttinn í síðustu viku :-)
Og enn fæðast folöld. Sóldögg hans Uli Reber (Þýskalandi) kastaði 11/7 móbrúnstjörnóttum hesti undan Orra (gullfallegur).
Sýla okkar kastaði 12/7 móvindóttu hestfolaldi undan Gígjari frá Auðsholtshjáleigu. Þetta er annað folaldið hennar og hafa bæði verið vindótt. Virðist hún vera sterk í erfðum með þennan lit. Hún er sjálf móvindótt undan vindóttri hryssu, Ísingu frá Hrafnkelsstöðum 1 (Freysdóttir frá Flugumýri) og Hrynjanda frá Hrepphólum.
Gára er enn óköstuð.
Spöng fyljaðist ekki með Huginn frá Haga, og er núna hjá Barða Þokkasyni frá Laugarbökkum, og þangað mun svo Gára fara líka.
Hestapestin hefur verið að tína upp eitt og eitt hross hér á bæ, en ekki verið svæsin. Höfum alltaf getað hreyft eitthvað.
Erum m.a. með 3 mjög skemmtileg tryppi 4. vetra sem við eigum undan Dalvari frá Auðsholtshjáleigu. Verulega geðgóð og skemmtileg :-)
Heyskap er lokið í bili. Eftir er að slá þau tún sem sauðféð var á, og síðan há á bestu túnunum. Þetta verður gert í ágúst.
(Smellið á myndirnar hér fyrir ofan til að stækka þær!)