Jæja, tími á nýjar fréttir...
Hér á bæ er allt gott að frétta, tíminn líður hratt.
Sauðburður byrjaði 6.mai með trompi. 250 ær og gemlingar báru fallegum lömubum, en þó eru enn 15 ær eftir óbornar. Allt gekk þetta þokkalega, margar hendur vinna létt verk, en hér voru vinnumenn á öllum aldri.
Það fór loksins að rigna í vikunni og gróður grænkar hratt og vel. Nú er bara að bíða eftir að það hlýni örlítið. Vorverkin eru einnig komin af stað í flögunum.
Í vikunni var hann Gyllir okkar sýndur í byggingardómi á Selfossi. Hlaut hann 8,68 í einkunn sem þykir gott. Þetta er stór hestur, 1.50 cm, og ekki farinn að valda öllum hreyfingum sem þarf til hæfileikadóms. Hann fær að njóta vafans í þeim efnum til haustsins. Gyllir er undan Arði frá Brautarholti og Gáru frá Hrafnkelsstöðum 1, en hann er 4.vetra.
Í næstu viku fara fóðrafolöldin að fara heim til sín en áður verða nokkrir folar úr hópnum geltir. Þar á meðal eru þrír frá okkur, þeir Snúður, Kostur og Hrafnkell. Hafi einhver áhuga á þeim áður en gelding fer fram eru upplýsingar um þá á heimasíðunni: tp://hrafnkelsstadir.weebly.com/hross-til-soumllu.html
Bestu kveðjur,