Hrossaræktarfélag Hrunamanna fagnaði 100 ára afmæli sínu fyrir stuttu. Til að minnast þess var m.a. sett upp myndasýningu af ræktunarhrossum félagsmanna í gegnum tíðina. Hver og einn hafði frjálsar hendur með það sem þar kom fram. Við tókum að sjálfsögðu þátt, og sjá má nokkrar af okkar myndum hér fyrir ofan.
Alltaf er gaman að taka á móti fólki sem vill heimsækja mann. Nemendur frá leiðsögumannaskólanum komu fyrr í vetur, og kynntu sér sveitabúskap. Þá voru á ferð fyrir stuttu síðan félagar í Hrossaræktarfélagi Biskupstungna. Þökkum við öllu þessu fólki kærlega fyrir komuna.
Hestamannafélagið Smári er búið að halda tvö púnktamót af þremur í vetur, en Maja tók þátt á systkinunum Krummatá (á 5. vetur) í unghrossaflokki og Hrímfaxa (á 6. vetur) í fullorðinsflokki 2, en þau lentu í 3. og 5. sæti í þessum flokkum.
Svo voru það smalarnir knáu sem fóru á snjósleðum í vikunni inn undir Kerlingarfjöll til að sækja tvílembu frá okkur. Sleðamenn úr Hafnarfirði voru á ferð fyrir viku á þessum slóðum og létu vita um kindurnar sem þeir sáu þarna.
En ekki er öll sagan sögð, því á leiðinni heim fundu okkar menn einlembu frá Hilmari í Syðra-Langholti, móts við Svínárnes.
Vitað var að þessar skepnur vantaði í haust, og mikill fögnuður heima fyrir þegar komið var með þær heim. Hafið kæra þökk fyrir þetta allt saman, elsku karlarnir.