Núna er tæknin orðin svo mikil að bændur geta látið telja fóstrin í ánum, hvort þær séu með lambi og hvað mörgum eða lamblausar.
Hér var talið í 310 gemlingum (Norðan gimbrunum sem komu í haust). Ekki er eftirsóknarvert að gemlingar gangi með tvö lömb, og því þótti okkur frjósemin vera með almesta móti þar sem 57 gimbrar voru með tveimur lömbum. (Það gleymdist því miður að taka myndir á meðan stelpurnar voru að telja).
Þá var komið að því að klippa snoðið af gemlingunum en það er seini rúningurinn. Hinn fer fram að hausti um leið og fé er tekið á hús. Steini í Haukholtum er hér rúningsmaður og rúði 320 gemlinga - laugardag og sunnudag - bara vel af sér vikið!
Hjalti Snær (barnabarn) og hinn nýji fjárhundur Colin fylgdust með af athygli :-)
Sauðfé