Á laugardag 28/2 var lokið við að raka tryppin sem eru á 1. vetri (30 stk., en hér eru 25 tryppi í fóðri frá hinum og öðrum). Einnig voru allir hófar klipptir. Á ýmsu gekk, eins og vænta mátti, en allt tókst vel að lokum.
Þar sem heitt er í húsinu er gott að vera laus úr lubbanum, leika sér í hlöðunni og éta svo hey eins og hægt er í sig að troða, bragðbætt með lýsi og bætiefnum.
"Svo verður maður svo ofsalega töffaralegur svona nýrakaður" :-)