Sigurður Ingi dýralæknir kom og sprautaði hjá okkur um daginn.
Folöldin voru að sjálfsögðu misróleg eins og sjá má á einni myndinni, en Alli hjálpaði okkur og það gekk allt mjög vel. Við vorum enga stund.
Við klipptum svo hófa á öllum hrossunum (ekki á folöldunum ennþá) á bænum - þetta voru u.þ.b. 160 hófar!
------------------------------------------------------------------