Nýlega var haldinn aðalfundur Hrossaræktarfélags Hrunamanna. Á þeim fundi er meðal annars veittar viðurkenningar. Við vissum nú ekki hvaðan á okkur stóð veðrið því þegar upp var staðið fórum við heim með þrenn verðlaun. Viðurkenningu fengum við fyrir efstu sýndu hryssu, ræktaða af okkur en er ekki lengur í okkar eigu, það er Hrafna frá Hrafnkelsstöðum 1. Fyrir efstu sýnda hryssu í ræktun og eigu okkar, var Spönn frá Hrafnkelsstöðum 1. Rúsínan í pylsuendanum var síðan þegar við fengum ræktunarbús verðlaunin.
Það má með sanni segja að við séum stolt af þessum viðurkenningum, stundum hefur maður efni á að monta sig
Það má með sanni segja að við séum stolt af þessum viðurkenningum, stundum hefur maður efni á að monta sig