Þá er daginn tekið að lengja og styttist í vorið. Já, lóan er komin, segja þeir í fréttunum. Ekki hefur verið mikið um snjó hér um slóðir , það sem af er vetri. Þó náðist að fanga hann á mynd, en fljótur var hann að hverfa.
Vinirnir Janus og Helgi Gísla komu og rökuðu folöldin fyrir okkur. Alltaf jafnmiklir aufúsugestir, kátir og hressir ,,elsku strákarnir okkar,, :-)
Maja elskuleg er alltaf dugleg við að mynda hrossin og setja á heimsíðuna. Hér kemur fyrir sjónir ógeltur foli á annan vetur, hann Gyllir, sem vekur athygli fyrir fallegt yfirbragð. Hann er undan Arði frá Brautarholti og Gáru okkar, er með 123 í kynbótamati.
Hjá Bylgju Gauks eru tvær hryssur frá okkur í tamningu, báðar á 4.vetri. Myndin fyrir ofan er af Söndru Sveins-Hervarsdóttur, að stíga sín fyrstu spor í skólanum í haust. Hin hryssan heitir Hrafna, og er hún undan Hrafnari frá Auðsholtshjáleigu og Skyggnu Svartsdóttur. Stendur til að fara fljótlega og sjá hvernig þær hafa þróast.
Við fórum að Laugarbökkum einn daginn og sáum frá okkur hryssu á 5. vetur, hana Spönn Huginsdóttur, sem Janus er með. Sandra og Spönn eru systur, undan Spöng frá Hrafnkelsstöðum 1.
Spönn sú gráa er verulega spennandi tryppi, og vel um hana hugsað af tamningamanninum. Þess má geta að hún var næst hæst dæmda hryssan í 4.vetra-flokki á landinu, árið 2013. Hún hlaut 8,24 fyrir byggingu, 8,09 fyrir hæfileika, Aðaleinkunn: 8,15.
Hér fyrir neðan er myndbrot sem við tókum upp um daginn.