Nú er sauðburði gott sem lokið og gekk hann vel. Þá létti hin góða vorkoma mikið öll verk.
Nokkur folöld eru fædd. Hörpudís kastaði fallegri jarpri hryssu undan Spuna frá Vesturkoti en Helgi og Gunnhildur eiga hana. Dætur þeirra skírðu folaldið um leið og þær sáu það, og heitir það Harpa Rós frá Helgatúni.
Folöldin sem hafa fæðst okkur enn sem komið er:
Rauð hryssa undan Sytru og Jarli frá Árbæjarhjáleigu.
Brúnn hestur undan Spöng og Huginn frá Haga.
Sótrauð tvístjörnótt hryssa undan Lind og Hágangi frá Narfastöðum.
Lygna okkar kastaði dökkjarpri hryssu undan Loka frá Selfossi en Christina og fjölskylda í Austurríki eiga það folald.
Snót frá Tungu átti móálóttan hest undan Stála frá Kjarri en Snót er í eigu Sigurðar og Sindra í Hafnarfirði.
Ýr frá Jarðbrú og Sóldögg frá Breiðumörk eru báðar á vegum Uli Reber en þær áttu sitt hvort rauðskjótta folaldið undan Lukku-Láka.
En hæst ber þó hér á bæ þessar stundirnar útkoma kynbótasýninga vorsins.
Janus sýndi tvær hryssur í Hafnarfirði kenndar við Hrafnkelsstaði, þær Hönnu Gáradóttur 6 vetra, ræktaða af honum en í eigu Helga Gísla og Gunnhildar. Hún er í 9.-10. sæti inn á mót í sínum aldursflokki með 8.41 í aðaleinkunn.
Hin er Spönn Huginsdóttir 5 vetra, ræktuð og í eigu okkar. Hún er í 8.-9. sæti inn á mót með 8.29 í aðaleinkunn.
Þess má einnig geta að Janus sýndi auk þess 4.vetra hryssu frá Laugarbökkum sem er efst inn á mót með 8.29, og 5.vetra hryssu frá Hrauni í 10. sæti með 8.27. Til hamingju með glæsilegan árangur Janus minn og takk fyrir okkur. Þetta sýnir að þér er treystandi fyrir ungviðinu.
Þá sýndi Bylgja Gauksdóttir 4.vetra hryssu ræktaða af okkur, hana Hröfnu frá Hrafnkelsstöðum 1. Hún er í 4. sæti inn á mót með 8.21 í aðaleinkunn. Eins og Janus sýndi Bylgja fleiri hross sem eru inni á móti, og sömu ummæli og Janus fær hún frá okkur.
Það er alltaf gaman þegar vel gengur en þetta er nú bara hálfleikur, við spyrjum að leikslokum.