Aðfaranótt laugardags fæddust 2 folöld hjá okkur. Blástjarna kastaði brúnni hryssu undan Sveini-Hervari og Sýla kastaði móvindóttum hesti undan Bláskeggi. Þau eru bæði mjög spræk og líta vel út. Í gær fór Haraldur með Spöng út á Grænhól til Sveins-Hervars frá Þúfu. Núna eiga 6 merar frá okkur eftir að kasta og bíðum við spennt eftir að þær kasti.
Núna er allt komið á fullt í sumarverkunum.
Um helgina hleyptum við hrútunum og nokkrum gemsum út á tún í sumarblíðuna. Búið er að bera á nokkur tún enda viðrar vel til þess.
Á þessari mynd sjást Sýla og Spöng með folöldin sín.