Hér var verið að sónarskoða hryssur í gær, 11. ágúst. Komið var með hryssur sem voru í Hrunagirðingu hjá hestinum Vökli frá Árbæ (undan Vigdísi frá Feti og Aroni), en hann var þar á vegum Hrossaræktarfélags Hrunamanna. Sú útkoma var nú heldur slök.
Þá voru einnig skoðaðar heimahryssur hér sem voru hjá Hrafnari frá Auðsholtshjáleigu. Þær voru allar með fyli nema Björk, en hún hefur ekki haldið nema annaðhvort ár nú í seinni tíð.
Fórum við síðan að Grænhól og skiluðum folanum til síns heima, og fórum einnig með Sýlu, en hún fer undir Gígjar frá Auðsholtshjáleigu.
Myndatakan fór nú svolitið í handaskolum, en þó eru hér fyrir ofan nokkrar af heimastóðinu.