"Já, það eru ekki alltaf jólin" segir máltækið.
Í lok síðasta pistils var talað um hálfleik, og það var orð að sönnu. Á ýmsu gekk í regnblautum dómum á Landsmóti. Bæði Hanna 6 v. og Spönn 5 v. lækkuðu lítið eitt, þó hæsti dómur þeirra frá vorinu fylgi þeim.
En það var hin 4 v. Hrafna frá Hrafnkelsstöðum sem stóð fyrir sínu og gott betur, uppskar fjórða sætið í 4ra vetra flokknum, með 8.44 fyrir hæfileika + 8.11 í byggingu sem gerir 8.31 í aðaleinkunn. Glæsilegt það! Til hamingju knapi og eigendur!
Nú eru bæði Hanna og Spönn fyljaðar með Spuna frá Vesturkoti, og Hrafna fór til Óms frá Kvistum. Við erum spennt að sjá útkomuna næsta vor.
Þetta árið eru allar hryssur kastaðar.
Skyggna kom með myndarlega bleikálótta hryssu undan Fróða frá Staðartungu, frábært það.
Sýla átti gullfallegan móvindóttan hest undan Vesturfara frá Blesastöðum 1A. Hann hefði mátt vera meri en að öðru leyti meiriháttar folald. Sumum á bænum finnst hann fallegasta folald ársins, ekki orð um það meir ;-)
Hnyðja kastaði loksins, seinust allra, þann 18. júlí í slagveðursrigningu. Maja hafði beðið með eftirvæntingu í margar vikur. Hnyðja átti brúnan hest, myndarlegan en mjög smáan. Meðgangan var jú heldur ekki alveg með venjulegu móti þar sem hryssan var sónuð tóm og því brúkuð til reiðar og keppnis fram í miðjan apríl þangað til að bumban fór að gera vart við sig.
Hér á bænum er beðið eftir þurrki en afar mikið gras er á túnunum. Á döfinni er einnig utanlandsferð en við hjónin ætlum að heimsækja fjölskyldu tengdadóttur okkar í Færeyjum, og verður Maja hér bústýra á meðan.
Meira um ferðina í næstu frétt.