Fimm folöld fæddust okkur í vor og sumar.
-Spönn Huginsdóttir kastaði rauðri hryssu undan Konsert frá Hofi.
-Sytra Gígjarsdóttir kastaði móbrúnni hryssu undan Aðli frá Nýja Bæ.
-Lind Hrynjandóttir kastaði jarpstjörnóttri hryssu undan Aðli frá Nýja Bæ.
-Skyggna Svartsdóttir kastaði móbrúnum hesti undan Hrafnari frá Auðsholtshjáleigu.
-Lygna Dalvarsdóttir kastaði jarpri hryssu undan Kristal frá Auðsholtshjáleigu.
Gamla Spöng reyndist geld þegar til kom og er nú komið að leiðarlokum hjá henni, 25 vetra. Eftirtaldir stóðhestar voru notaðir hér í sumar: Sveinn Hervar frá Þúfu, Draupnir frá Stuðlum, Gaumur frá Auðsholtshjáleigu, Lukku-Láki frá Stóra-Vatnsskarði og Hrafnar frá Auðsholtshjáleigu.
Spretta og heyfengur voru með eindæmum góð og lauk heyskap með háarslætti 8.ágúst. Við nöfnur höfum verið að hreyfa hrossin sem eru heima á járnum. en Björgvin Viðar í Dalbæ hefur tamið og þjálfað 3 4ra vetra tryppi fyrir okkur í sumar. AF þeim eru tveir Sveins-Hervarssynir og svo móvindótt hryssa undan Bláskjá frá Kjarri. Hún kemur til með að bera vindótta litargenið því móðir hennar var vindótt Hrynjandadóttir sem var svo komin útaf vindóttum hryssum. Þessi hryssa kemur vel til, þæg og meðfærileg eftr aðeins 3ja mánaða tamningu. Hún er til sölu og meðfylgjandi er smá myndbrot af henni. Sex tryppi eru svo þriggja vetra sem munu verða fortamin í haust.
Fyrir nokkrum árum seldum við hryssuna Stöng frá Hrafnkelsstöðum 1, sem er undan Spöng og Stála frá Kjarri. Fyrir skömmu var hún sýnd á síðsumarsýningu á Mið-Fossum af Sigurði Matthíassyni. Hún hlaut m.a. 9 fyrir tölt, brokk, hægt tölt, vilja og geðslag og fegurð í reið. Stöng er klárhryssa og erum við afar stolt af þessum dómi. Takk Siggi minn.
Senn líður á sumarið og þá styttist í smalamennskur og réttir. Önnur haustverk fylgja síðan í kjölfarið.