Um helgina fæddist síðasta folald sumarsins hér á bæ. Það er rauðblesótt hryssa undan Ómi frá Kvistum og Snót frá Tungu í eigu þeirra feðga Sigurðar og Sindra, en þetta folald á Sindri.
Áður höfðu fæðst eftirtalin folöld í okkar eigu:
Jarpur hestur undan Sytru og Sveini-Hervari frá Þúfu.
Brúnnösóttur hestur undan Skyggnu og Sveini-Hervari.
Rauðblesóttur hestur undan Ertu og Sveini-Hervari.
Rauður hestur undan Gáru og Arði frá Brautarholti.
Móvindótt hryssa undan Sýlu og Bláskjá frá Kjarri.
Jörp hryssa undan Lind og Herjólfi frá Ragnheiðarst.
Auk þerra kastaði Spöng okkar rauðum hesti undan Álfi frá Selfossi, en það folald á hún Christina Lassacher sem leigði Spöng hjá okkur.
Hún Lygna okkar kastaði glórauðri hryssu undan Kiljan frá Steinnesi, en það er hann Janus sem á það folald.
Hörpudís frá Kjarnholtum kom með brúnan hest undan Kráki frá Blesastöðum, en Árni Svavarsson á folaldið.
Þoka Hervarsdóttir kastaði rauðstjörnóttri hryssu undan Sóloni frá Skáney, en Þoka og folaldið eru í eigu Helga Gíslasonar og Gunnhildar Sveinbjarnardóttur.
Ýr frá Jarðbrú kom með rauða hryssu sem líklega verður grá, en hún er undan Hrímni frá Ósi og á vegum Uli Reber í Þýskalandi.
Jasmín frá Króki kastaði brúnskjóttri hryssu undan Spuna frá Vesturkoti, en þær mæðgur eru í eigu Guðlaugar og Sigurðar sem eiga bústað hér í hreppnum.
Sjö 3ja vetra tryppi eru til sem byrjað verður að temja seinnipartinn í sumar:
Hásteinn undan Lind og Hágangi frá Narfastöðum.
Reginn undan Gáru og Huginn frá Haga.
Melur undan Golu Gustsdóttur og Sandi frá Varmadal.
Eldvör undan Ertu og Eldjárni frá Tjaldhólum.
Mist undan Skyggnu og Kjarna frá Þjóðólfshaga.
Spönn undan Spöng og Huginn frá Haga.
Venus undan Blástjörnu og Sveini-Hervari.
Það er alltaf jafn spennandi að sjá fyrstu viðbrögðin í tamningunni.