Í dag 15. maí er fjórðungur af ánum óborinn, ca. 70.
Sauðburður hefur gengið sæmilega, en frjósemin er með lakara móti, en þetta eru nú allt tveggja vetra grey.
Þrílemba kom áðan, en ekki eru lömbin stór, en samt spræk (sjá mynd).
Í dag fæddist líka fyrsta folaldið undan Orra og hryssunni Hörpudís sem Janus og Helgi eiga saman, en hún á hér heima. Hún kastaði rauðum hesti, sem Helgi Gísla á.
Nú er spurning hvort Janus heldur henni aftur undir Orra eins og búið er að standa til síðustu árin eftir að hafa séð þetta folald ;-)