Jæja þá er maímánuður liðinn og enginn frétt skrifuð. Það var svo mikið að gera í sauðburði, en honum er að mestu lokið núna - ein eftir. Griðarleg frjósemi, 34 þrilembur og 1 fjórlemb, helmingurinn af öræfagemsunum átti svo tvö lömb.
Lítil afföll urðu á sauðburði, en svo er mánuður til afréttarflutninga og sjálfsagt misferst eitthvað þangað til.
Lygna okkar var sýnd í kynbótadómi á Selfossi, náði tæpum 1. verðl. 7,8 fyrir byggingu, 8,08 fyrir hæfileika og 7,97 út. Átti svo að reyna við áttuna, en þá þyrfti hún endilega að meiðast í baki, svo þessi áform verða að bíða betri tíma.
Í gær voru geltir hér 10 folar frá hinum og þessum. Fóðrafolöldin eru óðum að hverfa til síns heima, og er þetta árlegt loka verk.
Bláskeggur er seldur og farinn til nýrra eiganda í Þýskalandi. Á næstunni fara svo tvö tryppi 2ja vetra undan honum sömu leið, þau Lilja og Blástakkur.
Fjögur folöld eru fædd hér á bæ í vor. Tvö af þeim eru okkur fædd en því miður drapst folaldið hennar Skyggnu í fæðingu, en það var svartur hestur undan Sveini-Hervari :-(
Erta kastaði fallegum rauðum hesti undan Mídasi frá Kaldbak.
Sytra Gígjarsdóttir kom með jarpstjörnóttan hest undan Kráki, en Magnús Trausti á Blesastöðum hélt hryssunni í fyrra og á folaldið.
Hörpudís - sameign Janusar og Helga Gísla - kastaði jarpri hryssu undan Orra frá Þúfu, algjör happafengur hjá Janusi.
Næstar til folaldseigna verða svo Snót frá Tungu þeirra feðga Sigurðar Adolfs og Sindra, það fyl er undan Gaumi frá Auðsholtshjáleigu; og svo Gára og Lind frá okkur. Gára fór undir Barða frá Laugarbökkum og Lind undir Kjarna frá Þjóðólfshaga. Síðastar verða svo Spöng héðan af bæ líka undan Barða, og Sóldögg frá Breiðumörk hans Uli Reber undan Aroni.
Ekki alveg ákveðið undir hvaða hesta hryssurnar fara í ár, en allavega munum við nota Svein-Hervar eins og hægt er, en hann verður hér í deildinni í allt sumar :-)