Jæja gott fólk, það er október, og ekkert skrifað síðan í ágúst. Viðmiðið var nú samt að gera hverjum mánuði smá skil.
Í september eru miklar annir hjá sauðfjárbændum, svo var og á þessum bæ. Farið var í afréttarsmölun 9. og 10. sept. og verið í viku, en réttardagurinn var föstudaginn 16. september.
Þar sem húsmóðirin á bænum er svokallaður "trússari" ásamt því að elda mat í mannskapinn, þurfti heilmikinn undirbúning fyrir ferðina, svo sem innkaupa á vistum og fleiri.
Þá var hafin sauðfjárslátrun á Selfossi, en þar sér fyrrnefnd kona um skipulagningu sláturfjár að húsinu.
Svo varð húsbóndinn 70 ára þann 15. sept., og var þess minnst við réttarsúpuát og fleira góðgæti. Um 200 manns litu við í fjárhúsinu og þáðu veitingar.
Kærar þakkir fyrir komuna þið öll!
Hér á bæ eru einnig nokkuð mörg hross sem þarf að fylgjast með og sinna. Hryssurnar sem haldið var komu heim úr graðhestagirðingum, flestar fyljaðar, en þær sem ekki héldu voru annarsvegar Blástjarna okkar, en hún er orðin gömul og væntanlega hætt folaldseignum, og hinsvegar Sóldögg frá Breiðumörk hans Uli Reber sem einnig kom fyllaus.
Búið er að setja þær hryssur sem ganga með folöldum á nýjan og óbitin haga, og eins og alltaf við slíkar breytingar þá græðast hryssurnar, en það merkjum við í miklum leik og kátínu í folöldunum.
Tvær 4ra vetra hryssur fóru í framhaldstamningu til Bylgju og Óla á Rauðalæk, og svo fór einnig 3ja vetra ógeltur foli undan Gaumi og Blástjörnu til þeirra fyrir rúmri viku, þegar við sóttum aðra hryssuna. Frábær vinna hjá þessu elskulega pari.
Þriggja vetra Stáladóttir og Spangar fór til Janusar. Og einnig tvær þriggja vetra í Austurás, önnur undan Tenór frá Túnsbergi og Ertu, hin undan Lind og Hróðri frá Refsstöðum.
Ómetanlegt að eiga góða að.