Gleðilegt sumar kæru lesendur!
Já tíminn flýgur áfram, kominn maí og sauðburður hafinn. Þá er nú lítið sofið.
Það er líf og fjör í kotinu því Jóhanna Bríet yngri er í verknámi í Bræðratungu fram á sumar, en hún býr hér hjá okkur ásamt Helga Fannari sínum, 20 mánaða gleðigjafa, en hann er í leikskólanum á Flúðum í góðu yfirlæti á daginn. Einnig er Maja flutt til okkar, en hún verður hjá okkur í sauðburðinum, og mun taka hross í tamningu eftir það.
Maja var með tvö hross á Mið-Fossum í vetur, annarsvegar Mel okkar á fimmta vetur og hinsvegar Hnyðju sem hún á. Þær tóku þátt í nokkrum keppnum saman og unnu meðal annars tvö töltmót, T7 og T3. Í ljós kom svo í byrjun apríl að Hnyðja er fylfull eftir allt saman! En hún var sónuð tóm frá graðhesti eftir sumarið. Hún er núna komin heim í verðskuldað "fæðingarorlof" :-)
Við fjárfestum í nýja rakstrarvél frá Pöttinger, og var Haraldi boðið út til Þýskalands og Austurríkis að skoða verksmiðjuna og fleira skemmtilegt. Þeir fóru saman frændurnir og vinirnir Haraldur og Alli á Hrafnkelsstöðum 3, og skemmtu þeir sér vel.
Einnig keyptum við svokallaðan hlaupakött í fjárhúsið, en "Loftur bróðir" sá um að koma honum upp. Nýjung þessi breytir heilmiklu fyrir okkur í sambandi við gjafir.
Sl. föstudag heimsóttum við Bylgju og sáum tamningahryssurnar okkar. Hrafna heitir önnur þeirra og er fyrsta afkvæmi Hrafnars frá Auðsholtshjáleigu en hann var notaður hér tveggja vetra. Móðir Hröfnu er Skyggna Svartsdóttir frá Hrafnkelsstöðum 1.
Þetta 4v tryppi lofar góðu og ef allt gengur eftir, verður hún sýnd í kynbótadómi á Hellu í júní.
Endilega skoðið myndbandið á Hröfnu hér fyrir neðan.
Þá er einnig stemmt með Spönn Huginsdóttur og Spangar á kynbótasýningu á Selfossi í maí, en Spönn er 5 vetra og er í þjálfun hjá Janusi á Laugarbökkum.
Mikið vor er komið í ungviðið sem er í fóðrun hér á bæ. Betra að vera ekki fyrir þegar hleypt er út - þvílík rassaköst!