Í vikunni fórum við til Janusar að taka út hann Gylli okkar. Gyllir frá Hrafnkelsstöðum 1, er undan Arði frá Brautarholti og Gáru frá Hrafnkelsstöðum 1. Hann er þar í tamningu og er búinn að vera síðustu 2 mánuði. Hann fór einnig í frumtamningu þangað í haust. Hann temst vel og erum við mjög ánægð með það sem við sáum.
Látum fylgja tvær myndir með:
Látum fylgja tvær myndir með: