Nú er sauðburði að mestu lokið og sauðféð komið á beit, og nú hefst útieftirlitið sem stendur út júní mánuð, eða þar til flutt verður í afréttinn.
Folöld hafa fæðst hvert af öðru:
25. maí kastaði Erta brúnu hestfolaldi undan Vökli frá Árbæ.
27. maí kastaði Spöng brúnni hryssu undan Sveini-Hervari frá Þúfu.
Og á kosningadaginn 29. maí kastaði Skyggna svartri hryssu undan Hrafnari Aronssyni og Gígju frá Auðsholtshjáleigu.
1. júní kastaði Blástjarna dauðu svörtu hestfolaldi líka undan Hrafnari.
Þær eru svo allar að fara undir stóðhesta. Erta undir Mídas, Spöng undir Huginn og Skyggna undir Svein-Hervar.
Lind sem var geld þetta árið er hjá Kjarna Þjóðólfshaga.
Gára og Sýla kasta í júlí.
Snót frá Tungu þeirra feðga Sindra og Sigga kastaði um daginn rauðum hesti undan Álfi frá Selfossi (einlitur!), og var farið með hana undir Gaum frá Auðsholtshjáleigu.
Fóðratryppin hafa farið til síns heima, og eigendurnir þakklátir fyrir uppihaldið. Kynni af svona ungviði eru mjög gefandi þar sem hver einstaklingur hefur sín sérkenni.