Árið 2018 er gengið í garð og ekki seinna vænna en að skrifa fáeinar línur. Hauststörf voru með svipuðu sniði og áður. Húsmóðirin fór með sínum traktor sem trúss á fjallið og eldaði í mannskapinn í 30. skipti.
Við fórum með hrúta á hrútasýningu og komu þeir vel út. Hrúturinn okkar hann Toppur var efsti lambhrúturinn og Vængur var 3ji hæsti veturgamli hrúturinn. Gaman að taka þátt í sýningum sem þessum. Lömbin komu ótrúlega vel út í haust. Fengitíminn er hafinn og eru hrútarnir að ljúka við að sinna sínu verki.
Tryppin sem fóru í hausttamningar stóðu vel fyrir sínu og er Hágangsdóttirin nú þegar seld. Þrjú tryppi fóru til Janusar, þau Spes, Spölur og Herkja. Spes og Spölur eru komin heim en Herkja verður áfram hjá Janusi.
Við erum búin að endurnýja dálkinn "Hross til sölu" hér á síðunni.
Að lokum sendum við ykkur okkar bestu nýárskveðjur,
Hanna og Haraldur Hrafnkelsstöðum