Ekkert lát er á nóvemberblíðunni, enda var sauðféð ekkert kuldalegt þegar rúið var í vikunni.
En það er stundum votviðrasamt og gæti orðið til þess að hross fengju holdhnjúska. Við reynum að fylgjast með því hér á bæ, en höfum ekki orðið vör við neitt ennþá.
Byrjað var að gefa folaldshryssunum heyrúllur í gær, en þær hafa hingað til verið á ábornu túni.
Í mikilli bleytu er hætt við útvatnaðri beit, þó jörðin sé grænleit.
Öll tryppin sem voru í hausttamningu eru nú komin heim. Við sóttum Stöng (Spangar og Stáladóttir) til Janusar, en hún fer vel af stað.
Þær voru einnig sóttar þær Rödd (Tenórsdóttir og Ertu) og Hemra (Hróðursdóttir og Lindar) að Austurási. Þær voru sýndar okkur í reið af þeim Röggu og Agnesi Heklu, og fóru þær fallega hjá þeim.
Glitnir 3ja vetra Gaumssonur (ógeltur) var sóttur sl. föstudag austur að Efri-Rauðalæk til Bylgju og Óla eftir ca. 3ja vikna tamningu. Hann var sýndur okkur í reið, en það gerði Elsa Hreggviðsdóttir Mandal sem er að temja hjá þeim. Er skemmst frá því að segja, að það tókst með miklum ágætum. Takk kærlega fyrir.
Við viljum einnig senda kveðjur til eigenda nýkrýndra heiðursverðlaunahryssna. Innilega til hamingju.