Þar sem nú er komið sauðfé enn og aftur hefur það verið á áætlun að eignast aftur hund, og þá helst hund sem eitthvað væri orðin taminn.
Nú duttum við niður á einn slikan, rúmlega ársgamlan Border Collie frá Gunnari Guðmundssyni í Hafnarfirði.
Að sjálfsögðu er þetta háættað dýr, undan innfluttum hundi, hans fyrsta afkvæmi.
Svona hundur heitir auðvitað ekki Smali eða Lappi eða öðru rammíslensku nafni heldur var hann skírður af sínum ræktanda í höfuð frægs erlends hundatemjara og ber nafnið Colin.
Þá er að sjá hvernig úr rætist, en ekki vantar áhugan í dýrið.