Kæru lesendur.
Þið hafið e.t.v. tekið eftir merkinu (hesthöfuð) sem komið er á heimasíðuna. Er það merki Gæðastýringarinnar sem við höfum tekið þátt í frá upphafi. Um það má lesa með því að smella á "Um okkur" hér til vinstri.
Hitt og þetta hefur verið aðhafst í marsmánuði. Hanna járnaði hestinn sinn, hann Klið Dalvarsson, og fór á honum á reiðnámskeið hjá Ísleifi í Kálfholti. Frábær kennari hann Ísleifur.
Við heimsóttum Janus tamningamann á Laugarbökkum, um daginn. Hann fór með tamningahrysurnar okkar þær Spönn og Stöng upp á Selfoss, og sýndi okkur þær í reið í nýju umhverfi. Er skemmst frá því að segja að við erum mjög ánægð með útkomuna. Skoða má myndband af þeim systrum hér fyrir neðan.
Þá var farið til Bylgju að Feti, sl. miðvikudag. Hún temur fyrir okkur Mist, gráa Kjarnadóttur á 4 vetur, mikinn orkubolta, sem fer mjög vel af stað.
Glitnir Gaumssonur, sem Maja hefur þjálfað í Reykjavík í vetur, hefur verið seldur norður á Akureyri.
Þá er það að frétta af sauðfjárbúskapnum, að búið er að klippa snoðið, og fósturtelja í tveimur yngstu árgöngunum. Útkoman mjög góð, reyndar óþarflega margir gemsar með tveimur lömbum. Þá þarf að fara að brennimerkja, klippa klaufir og vigta, því nú styttist í sauðburð.