Þá er yndislega veðursælt sumar sen á enda og haustlægðirnar farnar að sýna sig með tilheyrandi roki og rigningu.
Heyfengur sumarsins kominn í stæður, pakkaður í rándýrt plast og aldrei verið meiri.
Við taka haustverkin - Hanna að skipuleggja slátrun hjá S.S. Selfossi en á sl. hausti var slátrað um 110 þús. fjár, ærin starfi það.
Þá er nýafstæðin fjallferð og réttir. Fjallferðin í góðu og björtu veðri, en allvætusamt í réttunum. Heimtur af fjalli sæmilegar. Veturgömlu ærnar úr N.Þing. sem fengnar voru í fyrra margar gullfallegar - góður hópur þær.
Rekið var að og lömbun tekin undan og sett á ræktun til bötunnar.
Brátt verður dregið undan hrossunum þau sett í hausthagann.
Hryssurnar eru enn í stóðhestahólfum, en eru að tínast heim sem er nú reyndar í seinna lagi miðað við venju.
Lind er ennþá hjá Kjarna frá Þjóðólfshaga og Gára hjá Kvisti frá Skagaströnd.
4 trippi sem fara á 4. vetur, öll undan Dalvari frá Auðsholtshjáleigu, eru farinn í frumtamningu í Austurás (austuras.is), Maja farin í Háskólann, Hanna á Selfoss til S.S., svo kallinn orðin einn heima í kotinu og lítur eftir fé og hrossum. Nú er gott að hafa fjórhjólið.