Kominn miður júlí, og meira en mál á að segja frá. Sauðburður gekk vel, mikil frjósemi (40 þrílembur). Eins og alltaf einhver afföll, og er offóðrun kennt um. Það er vandlifað í henni veröld.
Fórum á Landsmót Hestamanna og höfðum ánægju af. Góð umgjörð, gott veður og verulega góð hross og knapar.
Féð var svo drifið í afrétt eftir Landsmót, og slegið það sem eftir var af heimatúnunum. Það sem beitt var, verður svo ekki slegið fyrr en í ágúst, ásamt hánni á sléttunum. Góð spretta og mikil hey.
Lítið var um kynbótasýningar frá þessum bæ í ár, en einn 4ra vetra graðfoli undan Gaumi frá Auðsholtshjáleigu, sem heitir Glitnir frá Hrafnkelsstöðum, var byggingadæmdur og fékk 8,04. Ákveðið var að bíða með að fá dóm á 4ra vetra Stáladótturinni Stöng frá Hrafnkelsstöðum, en hún er mjög hreyfingamikil og þarf að ná betra jafnvægi.
Í vor seldum við 5 vetra Krummadótturina Svertu frá Hrafnkelsstöðum henni Elsu Mandal Hreggviðsdóttur. Hún sýndi Svertu í kynbótadómi þar sem hún fékk 7,82 í aðaleinkunn, þar af 8,08 fyrir byggingu og 8 fyrir alla þætti í hæfileikadómi nema 8,5 fyrir vilja/geðslag og 9 fyrir stökk. Sverta er skeiðlaus.