Á laugardaginn var kom fyrsta fóðrafolald vetrarins. Á sunnudaginn komu svo 10 stk. í viðbót. Algjör sprenging er í aðsókn í þessa fóðrun, og komast færri að en vilja, en verða hér í vetur á milli 40 og 50 folöld. Fjör það!
Þá er komið að því að sleppa hrútum í ærnar, og er eftirvænting þeirra mikil.
Laufabrauðsgerð ein mikil var hér um helgina. Alls voru gerðar 157 kökur og er þetta árleg hefð í heiðri höfð af fjölskyldunni.
Í nóvember var Helgi Fannar skírður. Hann er fyrsta langömmu og langafabarnið okkar hér á bæ, og vakti fæðing hans landsathygli svo sem fram kom í blaðinu "Vikunni". Dafnar hann afar vel.