Jæja, þá er allt að komast í fastar skorður í útihúsunum.
Í desember voru miklar framkvæmdir, en Loftur bróðir kom og gerði upp eldri folaldastíurnar. Það er gott að eiga svona handlaginn bróður og þökkum við honum alvega innilega fyrir. Þetta er mikill munur og auðveldar störfin til muna.
Hrútarnir hafa sinnt sínu hlutverki og virðast hafa staðið sig prýðilega. Niðurstaða verður að bíða til vors...
Nú eru öll fóðrafolöldin komin í hús. Mikið gengur á við fyrstu kynni hjá þeim og er fróðlegt að fylgjast með hvernig virðingaröðin ræðst innan hópanna.
Eins og venjulega koma þeir Janus og Helgi og sjá um að klippa öll folöldin, við mismikinn fögnuð þeirra sem "sitja í stólnum" Takk strákar mínir :)
Í vikunni kom síðan árlegur hópur af alhliða karlmönnum. Sveinn dýralæknir kom og sprautaði allt stóðið með ormalyfi og tók DNA sýni. Páll í Núpstúni sá um að örmerkja og Aðalsteinn var eins og venjulega til staðar og hjálpaði við þetta af mikiilli eljusemi.
Í janúar fóru einnig tvö hross í áframhaldandi tamningar.
Gyllir sem er á 4.vetur undan Arði frá Brautarholti fór til Janusar, en hann var þar í frumtamningu í haust. Hrifla sem er einnig á 4.vetur undan Herjólfi frá Ragnheiðarstöðum fór til Bylgju, en hún var þar í haust í frumtamningu.
Nú þegar daginn fer að lengja styttist í að við nöfnur tökum inn hross á járn.