Enn æðir tíminn áfram. Komin verslunarmannahelgi sem margir líta á sem ákveðin tímamót sumars og hausts. Allavega er farið að rökkva.
Síðustu fréttaskrif voru í lok sauðburðar. Farið var svo með féð í afrétt um hálfum mánuði seinna en vanalega, eða 12.-15. júlí vegna lélegrar sprettu.
En fyrri túnaslætti lauk hér 10. júlí, nokkuð seinna en oft áður.
Straumur, sem sagt var frá í síðustu skrifum, stóð sig með ágætum á Landsmóti, hlaut 8,30 fyrir hæfileika, 7,98 byggingu og 8,17 í aðaleinkunn, og hlaut þar með níunda sætið í flokki 4v stóðhesta. Og við vorum að sjálfsögðu þrælmontin af öllu saman :-)
Þær mæðgur Spöng og Gára köstuðu sitt hvorum rauða hestinum (undan Barða frá Laugarbökkum sem einnig gerði það gott á Landsmótinu), og fannst okkur þá komið nóg af hestfolöldum... En hún Lind bætti fyrir hinar og kastaði sótrauðblesóttri hryssu [sjá mynd hér fyrir ofan] :-)
Snót frá Tungu kom með jarpa hryssu undan Gaumi, og síðust kastaði Sóldögg rauðstjörnóttri hryssu undan Aroni.
Stóðhestar sem notaðir eru í sumar eru
Sveinn-Hervar, Herjólfur, Arður, Álfur og Bláskjár. Aðkomuhryssurnar fara til Hrímnis frá Ósi, Kráks, Óms og Lukku-Láka.
Í sumar hefur Maja rekið tamningastöð og annar vart eftirspurn. Við nöfnurnar reynum svo að hreyfa heimahrossin, ásamt Haraldi yngri og Hjalta Snæ sem eru farnir að ríða Fölva.