Við erum ekki búin að sinna heimasíðunni mikið upp á síðkastið vegna sauðburðar. Við erum á fullu í fjárhúsunum alla daga og allar nætur. Það gengur allt þokkalega. Nú eru um 100 ær bornar.
Á kosningakvöldinu 25. aprill var haldin árleg folaldasýning Hrossaræktafélags Hrunamanna í Torfdal á Flúðum. Það var mjög mikil þátttaka og var margt um manninn. Við mættum til leiks með Glitni, Stöng og Rödd. Jarl frá Jaðri bar sigur úr bítum, næstur kom Glitnir og þriðja var Stöng. Stöng var einnig kosin fallegasta folaldið að mati áhorfenda. Við vorum mjög ánægð með árangurinn hjá okkar gripum. Hanna var upptekin við kosningavinnu svo Helgi Gíslason fyrrum tamningamaður á bænum kom og hjálpaði okkur.
1. mai var hin árlega firmakeppni Smára haldin á Flúðum. Maja tók þátt á Gjörð í kvennaflokki og stóðu þær sig mjög vel. Hanna tók einnig þátt í flokki heldrikvenna og karla á Runna og urðu þau sigurvegarar í þessum flokki. Þau voru mjög glæsileg á vellinum. (Runni er til sölu)
Núna í mai komu fyrstu folöld ársins í heiminn. Það eru 15 merar hjá okkur sem eiga að kasta núna i sumar. Við eigum von á 10 folöldum núna sem er heldur meira en venjulega. Hinar 5 eru í fóðri hjá okkur. Spöng kastaði kolsvartri meri sem verður að öllum likindum grá en hún er undan Huginn frá Haga. Blástjarna á að kasta næst og við bíðum spennt eftir folaldi undan henni og Sveini-Hervari frá Þúfu.