Ja hérna ágúst, september, október. Þrír mánuðir liðnir án skrifa. Öll góð áform að engu höfð. En best að byrja þar sem frá var horfið.
Þurkurinn kom og fór eftir stutta viðdvöl, sem endurtók sig í sífellu.
Við fórum í ógleymanlega viku ferð til Færeyja í lok júlí. Komumst m.a. á kappreiðar sem haldnar voru í tengslum við Ólafsvöku. Knaparnir lifðu sig vel inn í hlutverkið, með miklum hvatningarópum, en létu alveg vera að baða út öllum öngum.
Farið var í afréttinn 5. og 6. sept. og réttað svo 12. september. Að vanda var margt um manninn í réttasúpunni, og svo var spilað og sungið fram á nótt.
Sláturhúsvinna hófst af fullum krafti 15. sept. og lauk þann 7. nóvember.
Um seinustu helgi var fullorðna féð tekið inn og rúið. Þar með er allt sauðfé á bænum komið á gjöf.
Tvö folöld eru komin í hús, og svo hann Bjartur Barðason 3ja vetra ógeltur sem var að koma heim eftir 6 vikna tamningu hjá Ragnhildi Haraldsdóttur, en hann fer svo aftur til hennar eftir áramót.
Öll 3ja vetra tryppin eru því orðin reiðfær, en eitt fór til Helgu Unu, eitt til Bylgju og eitt til Janusar.
Við erum mjög ánægð með þessar tamningar, og líkaði okkur vel það sem við sáum. Brjánn Barðason og Spangar kom okkur sérstaklega á óvart en hann fer mjög vel af stað að okkar mati. Látum stutt myndskeið fylgja hér fyrir neðan þar sem hann er búinn að vera hjá Janusi í uþb. mánuð.