Lítið hefur verið skráð inná síðuna uppá síðkastið.
Eitthvað hefur nú samt gerst í haustverkunum.
Í sauðfénu, er þar að segja frá að slátrun er lokið og erum við bara mjög sátt við útkomuna með tilliti til þess að þetta eru allt gemlingalömb í ár.
Fyrirhugaður rúningur er um helgina 7-9.nóvember og tökum við þá einnig ærnar á hús.
3ja vetra tryppin 4 sem fóru í frumtamningu í Austurás eru komin heim aftur. Þau voru öll orðin vel reiðfær eftir þennan stutta tíma hjá Óla. Þar var vel að verki staðið, og hefur hann sannerlega unnið vinnuna sína. ÞAð er óhætt að mæla með þessum unga manni. Samgleðjumst við Hauki og Röggu að hafa fengið hann til vinnu í sína frábæru aðstöðu, sem í Austurási er.
Væntanlega fer eitthvað af þeim aftur þangað þegar líður á veturinn.