Nú styttist í hin hefðbundnu haustverk hér á bæ, svo sem fjallferð og sláturhúsvinnu.
Sumarið hefur verið okkur gjöfult hvað heyfang varðar, en heyskap lauk sl. helgi.
Þrjár hryssur eru ennþá hjá stóðhestum, en aðrar eru komnar heim með fyli.
Hestar sem við notuðum í sumar eru:
Toppur frá Auðsholtshjáleigu, Stáli frá Kjarri, Kjarni frá Þjóðólfshaga, Fróði frá Staðartungu, Arion frá Eystra-Fróðholti, Barði frá Laugarbökkum og Gári frá Auðsholtshjáleigu.
Aðkomuhryssunar fóru til Þrists, Nóa, Arions, Lukku-Láka og Kráks.
Mikil eftirspurn er eftir folaldafóðrun í vetur, og er allt orðið fullt.
3vetra tryppin sem minnst var á í síðustu frétt hafa verið gerð bandvön og vanin við hnakk og beisli. Það má segja að öll hafi þau tekið þessari meðferð með stakri prýði. Stefnan er að þau fari í annan bekk seinna í haust.
Um næstu mánaðarmót fer Maja í Háskólann á lokanámsárið. Þar með lýkur þjálfun hrossa á Hrafnkelsstöðum þetta sumarið, en hún hefur stundað þetta að miklum dugnaði ásamt því að frumtemja fyrir aðra. Svo hefur Björgvin Viðar úr Dalbæ verið góður og öflugur starfskraftur hjá okkur á mestu álagstímum eins og í sauðburði og við frumtamningar. Hann fer í Fjölbrautaskóla Suðurlands í haust.
Tvær merar kenndar við Hrafnkelsstaði fóru á síðsumarsýningu í vikunni á Hellu.
Hnyðja er 5 vetra undan Björk frá Hrafnkelsstöðum og Dynssyninum Funa frá Vindási, en hana á Maja, og fór hún í 7,64 í aðaleinkunn (skeiðlaus).
4 vetra Gáradóttirin, Hanna, sem Helgi Gíslason og Gunnhildur Sveinbjarnardóttir eiga, bætti sig síðan í vor og er komin í fínar tölur strax 4ra vetra.
Þær eiga svo báðar yfirlitið eftir.