Í vikunni sóttum við hana Venusi okkar, Sveins-Hervarsdóttur og Blástjörnu, sem er búin að vera í tamningu hjá Bylgju Gauksdóttur. Venus er að okkar mati efnilegt tryppi, geðgóð og sérlega framfalleg.
Nú er öllum tamningum lokið hér á bæ þetta sumarið. Maja, Bragi, Jón, Jóhanna Bríet og Helgi Fannar halda á vit ævintýranna að Hvanneyri á morgun og munu dvelja þar næstu tvö árin.
Húsbændurnir hér á Hrafnkelsstöðum bíða eftir þurrki svo hægt sé að klára heyskapinn, því óðum styttist í fjallferð og sláturhúsvinnu.