Þessa dagana miðast allt við sauðburð, en hann byrjar upp úr næstu mánaðarmótum. Búið er að vigta ærnar og sprauta með garnapestarbólefni og seleni. Vélageymslan tæmd og útbúin aðstaða þar fyrir lambfé. Þá verður hlöðunni breytt í sama tilgangi. Folöldin fá nú orðið að fara út úr hlöðunni til viðrunar, og rassakastast um hlaðið. Nokkrir af eigundunum hafa komið upp á síðkastið, til að vega og meta gæðingsefnin sín. Gaman að sjá hvað margur einstaklingurinn kemur á óvart í útliti og hreyfingum.
Við hjónakornin fórum að líta á Lygnu Dalvarsdóttir hjá Janusi. Það er skemmst frá því að segja að við vorum verulega ánægð með eignina.
Þá hafa Gunnhildur og Helgi Gísla. þjálfað Bláskegg af kappi, og allar líkur á að hann sé að seljast.
Takk fyrir allt þetta, elsku krakkarnir "okkar". Þessi hjálp er ómetanleg fyrir fólk sem er að reskjast. Þá á Austurásfólkið mikið í öllu þessu. Ekki má gleyma Maju minni, en Hrímfaxi Dalvarssonur hefur verið hjá henni í Reykjavík í vetur, orðinn stællegur og flottur.
Kærar sumarkveðjur til allra.