Við byrjum á, að óska öllum gleðilegs árs, með þakklæti fyrir allt gamalt og gott. Í síðustu frétt fyrir jól, voru hrútar að byrja , að sinna sínu hlutverki, sem þeir hafa að mestu lokið nú. Alltaf fjölgar folöldum við stall, eru orðin 34 og ókomin 6-7. Tvær hryssur eru farnar í tamningu, önnur að Austurási en hin að Laugabökkum. Síðar í mánuðinum, fer svo Bláskeggur (stóðhestur) væntanlega í Austurás. Það er gott að eiga góða að , með tamningu og þjálfun, þegar aldur færist yfir og getan minkar, hjá eigendunum. Þá er Maja okkar komin heim frá Danmörku, úr jólafríi, og heldur áfram sínu námi í Háskólanum. En eins og sl. vetur munum við kellurnar, verða með hross á járnum, og tökum inn bráðlega. Ekki meira að sinni.