Nýja árið hefur heilsað okkur með allnokkrum umhleypingum í veðrinu. Hér á bæ voru sjö hross járnuð í byrjun mánaðarins, og höfum við Maja hreyft þau eftir bestu getu.
Tvö tryppi – Sverta og Glitnir, fóru í framhaldsnám til Bylgju og hennar fólks að Rauðalæk, Rödd fór aftur í Austurás og Stöng sömuleiðis til Janusar.
Fóðrafolöldum fjölgar, og er svo komið að allt er að verða yfirfullt. Þeir félagar Helgi Gísla og Janus eru væntanlegir á laugardag, og hefst þá klippingin á ungviðinu. Reynum að taka myndir af þeim gjörningi til birtingar á síðunni. Fróðlegt verður að sjá hvað leynist undir lubbanum.