Kæru lesendur,
Nú er annasamasti tími fjárbænda að ljúka, sauðburði. Hér á bænum hafa allar borið fyrir utan 7 kindur, þær munu bera á allra næstu dögum. Það hefur gengið alveg ágætlega, örlítið minni frjósemi nú enn í fyrra, en það er bara eins og gengur að gerist, maður getur ekki alltaf toppað. Við höfðum góða aðstoð, Jóhanna Bríet yngri og Helgi Fannar langömmu– og afabarnið eru búin að vera hér hjá okkur í maí auk Björgvins Viðars í Dalbæ. Nú er heilmikið af fé komið út, og mun restin fara út á næstu dögum.
Einnig hafa hér fæðst nokkur folöld.
Hörpudís þeirra félaga Helga og Janusar kastaði fallegum jörpum hesti undan Spuna frá Vesturkoti.
Skyggna okkar kom með enn eitt hestfolaldið, en sá er undan töltsnillingnum Barða frá Laugarbökkum.
Lygna kom med jarpa hryssu undan Gára frá
Auðsholtshjáleigu.
Hún Sytra kastaði fallegri hryssu sem að öllum líkindum verður grá eins og faðirinn Kjarni frá Þjóðólfshaga.
Þær mæðgur Spöng og Gára voru samtaka þetta árið, og köstuðu sitt hvorri fífilbleikri hryssunni undan Stála frá Kjarri, en Gárudótturina á reyndar Ulrike Fertsak frá Austurríki.
Í liðinni viku fór hún Spönn okkar í kynbótadóm á Selfossi. Spönn er 4ra vetra undan Huginn frá Haga og gömlu Spöng okkar. Sýningin gekk mjög vel, en Janus okkar tamdi hana Spönn og sýndi hana snilldarlega. Hún fór í 8,24 fyrir byggingu, en var rétt við 1.verðlaun í hæfileikum. Aðaleinkunin stóð þá í 8,05 fyrir yfirlit.
Í gær, sunnudag, var síðan yfirlitið. Sú sýning tókst frábærlega hjá þeim Janusi og Spönn, og hryssan hækkaði hæfileikaeinkunina sína yfir áttuna, og er því komin með 8,15 í aðaleinkun.
Til gamans má geta að hún stóð efst í sínum flokki, 4ra vetra hryssna. Við erum ekkert smá stolt af henni.