Það er kominn mars. Ótrúlegt hvað tíminn æðir áfram. Undanfarið hefur veðrið ekki alltaf verið skemmtilegt til útreiða, og ef það hefur verið í lagi, þá hleðst í hóf. En þetta eru nú bara vandræði, sem fylgja gamla laginu -engin reiðhöll-
Bláskeggur, sá vindótti, fór til Reykjavíkur um daginn, til að kynnast borgarhestamenningunni. Helgi Gísla og Gunnhildur eru að dusta rykið af honum.
Þá er Lygna Dalvarsdóttir farin til Janusar.
En það er fyllt í plássin jafnóðum hér heima. Urður Hilmisdóttir er komin á járn, og Haraldur farin að þjálfa. Dalvör "litla" Dalvarsdóttir var járnuð um helgina, og á nú að halda áfram tamningu á henni. N.k. miðvikudag og fimmtudag verður snoðið rúið af fénu. Folöldin fóðrast vel og stækka mikið. Mikið fjör í hlöðunni á viðrunardögum.