Ótrúlegt hvað tíminn líður, kominn febrúar og farið að lengja dagsbirtuna í báða enda.
Sauðféð verður snoðrúið eftir ca. mánuð, en aðeins byrjað að munda folaldakambana. Búið að útbúa tvær folaldastíur frammi í hesthúsi þar sem plássið í fjárhúsinu var sprungið.
Þrjár hryssur eru á járnum, og eitt aðkomutryppi kom í tamningu á laugardaginn var.
Þá eru farin þrjú reiðhross á Selfoss til Helga og fjölskyldu.
Á næstunni er fyrirhugað að heimsækja Janus og Austurás og skoða meðal annars tryppin okkar.