Björk kastaði fallegri rauðstjörnóttri hryssu. Sú litla er undan Bláskegg okkar.
Gola frá Grafarbakka er líka köstuð. Við tömdum Golu hérna á sínum tíma og fengum við að halda henni í fyrra. Hún er núna búin að gefa okkur stóran og reistan gráan hest undan Huginnssyninum Sand frá Varmadal. Sjálf er Gola undan Gusti frá Hóli. Maja er núna að temja tvö afkvæmi hennar frá Grafarbakka og koma þau vel út.
Ætlum að taka myndir þegar tækifæri gefst.