Það er kominn desember, og ekkert skrifað á síðuna síðan um réttir..Þetta gengur ekki lengur...
Sumarið var rigningarsamt, og haustið einnig. Háarheyskap lauk hér á bæ um 20. sept. og þá var sláturtíð hafin. Hún endaði svo 7. nóv.
Tveir folar 3ja vetra fóru í hausttamningu til Helgu Unu í Austurási, og tvær hryssur 3ja vetra til Bylgju á Feti. Eftir áramót verður svo haldið árfam með eitthvað af þessum tryppum.
Á næstunni fara tvær hryssur til Janusar á Laugarbökkum, en það eru þær Spönn Huginsdóttir á 5.vetri, og Hanna Gáradóttir á 6. vetri frá Helga Gíslasyni. Þær eru báðar komnar með fyrstu verðlaun 4. vetra. Það verður spennandi að sjá hvort þær hafa eitthvað meira upp á að bjóða.
Fyrsta fóðrafolaldið er komið í hús, og von á fleirum á næstunni. Hér á bæ var farið að gefa folaldshryssunum og veturgömlu tryppunum rúlluhey með beitinni, um miðjan nóvember. Leiðindaveður hefur verið undanfarið, tómir umhleypingar. Ekkert hefur þó borið á holdhnjúskum í hrossunum okkar.
Sauðféð er allt rúið og komið á gjöf fyrir löngu, og nú styttist í jólaglaðing hrútanna.
Að endingu óskum við ykkur öllum, gleðilegra jóla og nýjárs, með þakklæti fyrir samveru og góð kynni, á árinu sem er að líða.