23. nóv.:
Rangá felld. Smellið á myndirnar hér fyrir ofan til að lesa myndatexta.
----------------------------
28. nóv.:
Nú er veturinn aðeins farinn að sýna sig eftir mjög góða hausttíð.
Slátrun hjá S.S. lokið þetta árið og Hanna komin heim frá vinnu á skrifstofu S.S. Selfossi. Slátrað var tæplega eitt hundrað þús. fjár.
----------------------------
Við erum komin með folaldshryssurnar heim undir og farin að gefa þeim. Einnig eru 1 og 2ja vetra trippin komin á útigjöf, þar eru nokkur hross frá öðrum.
Talsvert hefur verið sóst eftir að koma folöldum í vetrarfóður til okkar. Bæði þeir sem eru orðnir fastir viðskiptavinir undanfarinna ára - og eins nýjir. Er svo komið að það er nánast hvert pláss setið.
----------------------------
1. des.:
Komin eru 6 folöld inn. Þau komu í dag - 1. des. - og eru frá Páli Melsted sem átt hefur hér folöld undanfarin ár. (Sjá myndir hér fyrir neðan).
----------------------------
5. des.:
Maja er hér í helgarfríi þessa helgina, en hún er að ljúka jólaprófum í Háskólanum. Ætlum við að reka saman folaldshryssurnar og taka inn eitthvað af folöldunum okkar.
----------------------------
Framundan er venjulegt jólastúss innanbæjar en í fjárhúsunum gengur allt ágætlega, senn liður að fengitíma þ.e. hrútum sleppt í ærnar sem verður þá að stía niður.