Nú er komin sá tími að huga þarf að vorverkum í fjárhúsunum.
Búið er að sprauta féð með bóluefni gegn lambablóðsótt, bráðapest og fleiri hvillum svo sem lugnapest og garnapest.
Um bænadagana voru þau hér Helgi og Jóhanna Bríet frá Selfossi og hjálpuðu okkur að brennimerkja og hornskella allt féð. Það voru nokkur törn - 330 kindur. Síðan foru þau hér á hestbak með mömmu sinni og ömmu, en fengu svo hestana til sín á Selfoss um páskana.
Núna um helgina á að sprauta allt féð með seleni (snefilefni gegn máttleysi) og vigta í leiðinni.
Síðan hefst sauðburður eftir hálfan mánuð og er Haraldur byrjaður á smíði og ýmsu því um að því lítur til hagræðingar fyrir þann tíma.